Saturday, December 31, 2005

Atvinnubloggari

Bölvuð togstreitan. Ég ætlaði að hella mér yfir lyklaborðið og með yfirlýsingum um að þeir valdamenn sem réðu mig til að vinna í túristabúð milli 9-12 á gamlársdag væru viðbjóðsleg fúlmenni og ef ég fengi einhverju um það ráðið myndu þeir fá tindrandi stjörnuljós fljúgandi upp í nefið. Ég ætlaði líka að skammast yfir því hvað heimska mín og græðgi í góðan félagsskap kynni sér engin takmörk. Vegna þess að í gær lét ég ævintýragirnina drífa mig milli skemmtistaða sem þar á meðal skilaði mér miða á Quentin Tarantino áramótapartýið og eftir það inn í furðulegt og þreytt eftirpartý Nemendaleikhúsleikara og tveggja dansara. Elstur var 29 ára, yngst 17. Við vorum fjögur. Ég kom heim hálf sjö um morguninn og vaknaði einum og hálfum tíma síðar ásamt skoðunum mínum um þennan fáránlega vinnutíma.

Síðan á meðan ég skrifa þessa færslu hef ég afgreitt fólk af meiri sölumennsku en nokkurn tímann, pakkað inn án þess að finna mig knúinn til að gefa 50% afslátt af vörunni og jafnvel þótt vænt um þessa örfáu sem ég hef afgreitt. Rostungslega íslendinginn, feimnu frönsku kattarkonuna (du ju hev a bague?), fjölskylduna sem keypti allt postulínið og síðan loksins fertuga rússnenska mömmustrákinnn sem keypti 4 símakort til að fara með út á sjóinn.

p.s. hlakka til partýsins í kvöld.. sem verður jafnframt ekki með Tarantino heldur betra fólki. Ég skilaði miðanum þetta sama kvöld.

3 Kómhendur:

Blogger Benedikt Karl Gröndal hripaði...

Þú ert bestur! Takk fyrir mjög fínt party! BTW...við eigum heavy mikið að áfengi eftir!....

9:19 AM  
Blogger Saga hripaði...

Gleðilegt nýtt ár Árni minn :D

6:21 PM  
Blogger Erlingur Grétar hripaði...

jólapakkinn sem við fengum var mjög vel pakkaður inn!

8:44 AM  

Post a Comment

<< Home