Friday, December 23, 2005

Jólin buðu góðan dag

Ég vaknaði í morgun, örlítið þunnur eftir ágætasta fyllerí og magnaða tónleika Hrauns. Reyndar sé ég eftir því örlítið að vera svona kjánalegur þegar ég er drukkinn. Hinn straumlínulagaði "svuave" Árni verður alltaf eftir í tómu glasinu og í staðinn tekur við klaufalegur áni.
Benni skutlaði mér og Snorra bróður heim og hafði gaman að þvoglumæli mínu og kjánaskap og það má þó eitt gott segja um þetta fyllerí. Ég lærði að áfengi og msn passa EKKI saman. Ég biðst einlæglega afsökunar þið sem ég talaði við.
Aftur að morgninum. Ég dröslaðist eldsnemma upp í Kringlu með fjölskyldunni sem gerði sitt besta í að halda mér vakandi. Blankur, áhyggjufullur og ekki búinn að kaupa eina einustu jólagjöf staulaðist ég inn í kringlu. Enn í Kringlunni ákvað hinn sanni andi jólanna að bjóða mér velkominn. Fyrst fór ég með veglega upphæð klinks í bankann til að gefa Rauð krossinum, síðan hjálpaði ég 3 ára stelpu sem hafði fest sjalið sitt, hún átti ekki orð en virtist þakklát. Fólkið sem ég hitti brosti, var kurteist og gantaðist um jólin og í þokkabót hitti ég vinkonu sem ég hef ekki séð heillengi. Dásamlegt!

Nú er ég heima að lagfæra gamalt leikrit og hlusta á balkan-tónlist, neita að vera gaurinn sem bloggar á aðfangadag þannig að hafið það gott um jólin og gleðileg jól lömbin mín!

5 Kómhendur:

Blogger Saga hripaði...

Láttu ekki svona gaukur, stuð að vera á haus í msn tjatti.

5:17 PM  
Blogger Jon hripaði...

Það er klárlega EKKERT að því að blogga á aðfangadag, væni minn.

8:07 AM  
Blogger Jon hripaði...

Og það er kannski líka eitthvað kjánalegt við fólk sem SKOÐAR blogg á aðfangadag.

Æj, Árni. Gleðileg jól. Ég elska þig svo mikið!

8:12 AM  
Blogger Vilborg hripaði...

Gleðilega hátíð elsku hjartans svuave Árni darling. Ég hlakka til að sjá þig eftir áramót!
Fullt af ást:)
Vilborg.

8:14 PM  
Blogger Árni hripaði...

æ sömuleiðis mín kæra Vilborg! Við skulum svo sannarlega sýna þeim hvað í okkur er spunnið. Ég get eiginlega ekki beðið eftir að byrja aftur.

5:21 AM  

Post a Comment

<< Home