Monday, December 12, 2005

This is my church, this is where I heal my hurts

Eins og Faithless kyrjuðu í kvæðinu um guð sem plötusnúð. Margir hafa viljað færa þetta yfir í íslenskan sálm. "Þetta er kirkjan mín, verður sem vítamín." Af einhverjum ástæðum hefur þessi bráðsnjalla þýðing ekki náð að skapa sér sess í íslenskum kirkjum. Voðalega kláraði magic dósin mín hratt.

Margir lesendur, bræður og systur í starfi og leik, hafa áttað sig á því að skipulag og skilvirkni eru kjörorð þeirra sem feta menntaveginn og skrifa ritgerðir. Sjálfur hef ég notað tíma minn vel síðustu stundirnar áður en ég skila mikilvægustu ritgerð annarinnar, hér fáið þið að sjá gott dæmi um þann undirbúning sem ég get nú státað af kvöldið fyrir ritgerðaskil:

Tveir absúrdistar löbbuðu yfir götu, þá var keyrt yfir annan þeirra en hinn breyttist í melónu.

Tveir minimalistar löbbuðu yfir götu, þá var keyrt yfir annan þeirra.

Tveir dramatúrgar löbbuðu yfir götu, þá var keyrt yfir annan þeirra á meðan hinn sagði efins; njá, en er það list?

Tveir póstmódernistar löbbuðu yfir götu, nákvæmlega eins og allir hinir gerðu á undan þeim. Og þeir vissu það.

Hvað þarf marga dramatúrga til að skipta um ljósaperu? Leikstjórinn er ekki búinn að mynda sér skoðun um það ennþá.

og ein bullhenda að lokum:

Margur óhreinn andinn býr
undir tré við víkurbotn
ég er eins og jólatré
ég er í hreppsnefndinni

Núna er klukkan 10 að kveldi. Ef ég sting af til Kuala Lumpur, þá hef ég örugglega samt ætlað mér að kveðja ykkur formlega, bara ekki mögulega gefist tími til þess.

12 Kómhendur:

Blogger Katrin hripaði...

þetta blogg slær út spaugstofuna.

3:47 PM  
Blogger OlgaMC hripaði...

mér finnst dramatúrgar mjög óvissusamt hlutverk í leikhúsi, samt heillar það mig á einhvern hátt, sem framtíðarvinna altso.

4:48 PM  
Blogger Árni hripaði...

Að vera dramatúrg getur verið allt niður í að sækja kaffi fyrir leikstjórann upp í að móta stefnu og verkefnaval frægra leikhúsa. Þegar ég skráði mig í fræði og framkvæmd var ég þess fullviss að hlutverk dramatúrgs innihéldi bara kaffihluta starfslýsingarinnar.

5:17 PM  
Blogger Inga Ausa hripaði...

kaffisækning já, og að tala við grunnskólanema á mjög artí máta...

7:40 AM  
Blogger Erlingur Grétar hripaði...

Þrír póstmódernistar, einn frá Rússlandi, einn frá Þýskalandi og einn frá Íslandi, löbbuðu inn á bar. Þeir voru að ræða saman um hvað þeir ætluðu að fá sér að drekka. Rússinn sagði: "ég ætla að fá mér Smirnoff-vodka. Vodka hefur hlýjað mörgu rússnesku skáldinu við skriftir sínar í gegnum aldirnar, og er vodka því það besta sem hægt er að drekka." Þjóðverjinn sagði: "Ég ætla að panta hveitibjór. Hann hefur gefið hundruðum þýskra skálda orku til að stunda list sína frá örófi alda, og því veit ég ekkert betra en þýskan hveitibjór." Íslendingurinn sagði: "ég ætla að fá mér brennivín. Það hefur hitað íslenskum skáldum í yfir 1000 ár, og orðið innblástur mörgum bestu skáldum Íslandssögunnar. því ætla ég að fá mér brennivín." Íslendingurinn býðst síðan til að sækja drykkina á barinn. Hann kemur að barnum og barþjónninn spyr hvað hann ætli að panta. Íslendingurinn segir þá: "hvað pöntuðu módernistarnir á næsta borði?"

11:14 AM  
Blogger Steini hripaði...

Það segir sig sjálft að meginvinna dramatúrgs felst í að túrga dramað. Annars er þetta blogg mjög hressandi. Takk Árni.

12:40 PM  
Blogger Árni hripaði...

tíhh, þakka þér kærlega fyrir steini minn. Hey vissuðið að á fræðsluneti Þjóðleikhússins eru fagbrandarar fyrir leikhúsfólk! Afhverju eru ekki fagbrandarar á hi.is? Eða skyr.is ef út í það er farið?

1:11 AM  
Blogger Snorri Hergill hripaði...

Mér fannst - og finnst enn - mjólkurfræðingur vera eitt magnaðasta starfsheiti heims. Getiði ímyndað ykkur staffapartíin og lókaldjókana? Svona hlutir gera mig hamingjusaman. Sem og leikhúsfagbrandararnir.

2:22 PM  
Blogger Atli Sig hripaði...

Guðna Ágústsyni þætti þetta ekki fyndið.

En hann er líka mongóliti.

5:55 PM  
Blogger Árni hripaði...

En ég sem hélt að Guðni Ágústsson væri einn af þremur fyndnustu mönnum íslands? Klárlega hlýtur misskilningur bróður míns á almennu skopskyni vera höfuð orsök þessa tilmælis. Það er fásinna að mjólkurfræðingar sé hlægilegir og sjálfur hló ég dátt að brandaranum: Hvað þarf marga mjólkurfræðinga til að skipta um ljósaperu? Einn, þeir kunna til verka.

6:58 AM  
Blogger Ragnheidur hripaði...

Oh nei, ég fór ekki í sleik. Ég ætla bara að gefa þennan sleik uppá bátinn, það er bara leiðinlegt. Í staðinn ætla ég bara að fara að finna upp allskonar morðsenur og búa til gerviblóð og hlægja að allskonar drápsatriðum í bíómyndum. Finnst þér það ekki raunhæfara en að fara í sleik?

8:57 AM  
Blogger Ugla hripaði...

Einu sinni voru tvö hús að labba yfir götu...
(Brandarablaðið. 2003:1).

Ef þú ætlar til KL, segðu þá Kei el, það er meira lókal. Lókal er meira töff. Ég er svo lókal að þú ættir að taka mig með til Kei el.

12:23 PM  

Post a Comment

<< Home