Tveggja turna tal
Ég er búinn að eiga langt og gott afmæli. Það var vissulega lengra en það var gott enda var það langt vegna þess að gæði þess voru skert með ýmsum loforðum og skuldbindingum.
Á manna máli: Ég þurfti að vera tæknimaður á 3 systrum í síðasta sinn, á afmælisdaginn minn. Þess vegna var flestu frestað þangað til daginn eftir, sem er í dag þó færð hafi verið sterk rök fyrir því að það hafi verið í gær, af því að núna er nótt.
Í afmælisgjöf fékk ég pening frá foreldrunum og "hey fokk reddum bara einhverju" gjafir frá samstarfstæknifólkinu mínu. Kolbrún gaf mér mandarínu og konfekt mola í plastpoka(en með fylgdi hugljúft kort) og Heiðar gaf mér pakka af Royal.. búðing.
Síðan rétt fyrir sýningu skrapp ég í sjoppu til að kaupa mér afmælismáltíð. Ég hafði fyrir því að stela afmælistertukerti frá Borgarleikhúsinu og stakk því í pulsu með öllu. Afgreiðslumanninum fannst þetta skrýtið en spilaði með, kveikti á kertinu og óskaði mér til hamingju með afmælið. Eina manneskjan sem mér datt í hug að væri í nágrenni til að deila þessum atburði með var ekki við.
En hvern er ég að reyna að blekkja? Innst inni held ég að mig langi að eiga einmannalega og vonda afmælisdaga til þess eins að geta skrifað um einmannalega og vonda afmælisdaga.
Í leikhúsinu sungu leikararnir fyrir mig afmælissönginn og allar fallegu leikkonurnar kysstu mig á kynninna (eða ein þeirra allavega), síðan var stuð eftir sýninguna og við lékum grínútgáfu af 3 systrum fyrir leikarana. Í kjölfarið fylgdi partý og ég vaknaði ekki þunnur daginn eftir þrátt fyrir að hafa blandað saman rauðvín-, bjór-, og vodkadrykkju eins og fábjáni.
Það sem sumir kalla í gær var síðan yndislegur dagur með fínum mat hjá foreldrunum bestu og leiksýningu og hangs og fínerí. Benni bauð mér í vídjógláp og Snorri lék á alls oddi.
Þessi bloggfærsla var tilnefnd til verðlauna fyrir einstakt næmi á La blogue de BaNane/CravatE hátíðinni í Marseille. Verðlaunin fékk ég ekki vegna þess að dómnefndin skildi ekki íslensku en lauksúpan á staðnum var hreint afbragð.

4 Kómhendur:
Lék ég á alls oddi? :o Jahér. Forgotten Silver var skemmtileg.
æj, ég náttúrulega fattaði ekki að kaupa gjöf handa þér. hálfviti olga
Hey! Til hamingju með afmælið!!! Eða eins og þýðverjar segja... æi fokk it... ég nenni ekki að þýða þetta á þýsku.
En hérna ég hef eina spurningu... Jakob fór eitthvað að tala um einhverja söng tegund sem hann kallaði: að dúlla. Sem mér fannst mjög fyndið. En hann sagði að þú hefðir einhver tíma sagt honum frá þessu.. Nú langar mig svolítið að vita hvernig útskýriru þennan söng eða huml?
Til hamingju með ammælið Árnalingur.
Post a Comment
<< Home