Um Þrjár systur eftir Checkov í Nemendaleikhúsinu
Mig langar að fjalla lítillega um leiksýningu sem ég hef séð ófáum sinnum síðustu vikur. Til að tryggja að allir viti hversu hlutdrægur ég er, þá keyri ég ljós í sýningunni og hef því séð hana, hlustað á túlkanir leikara og leikstjóra og það sem mér finnst mikilvægast, séð hversu mikið er stytt og tekið út úr leikritinu. Sagan er endursköpuð á mjög skemmtilegan hátt.(ælulega klisjusetning! ég meina það samt)
Þessi færsla á ekki að fjalla um frammistöðu leikaranna vegna þess að það væri svo ósanngjarnt gagnvart öllum. Ég ætla ekki að hætta mér út í þá skotlínu fyrr en ég fæ pening fyrir það og menntun til að rökstyðja það. Síðan er ég líka með pínlegt celebrity-crush á tveimur þeirra.
Ég varð ótrúlega hrifinn af þessari sýningu þegar ég sá hana fyrst. Mér fannst Checkov loksins lifandi og það heillaði mig upp úr skónum. Realismi var aldrei minn keipdúnkur, eins og mætur maður hefði orðað það. Endilega skellið ykkur á þessa sýningu, þið sem eigið eftir að sjá hana. Fyrir utan þá staðreynd að sjaldan hafa ljós verið keyrð af eins miklu næmi þá fær maður ekki á tilfinninguna að þetta eigi að vera þungt leikrit um tilgangsleysi aðgerðarlausrar borgarastéttar heldur að þessa kvöldstund fái maður að kynnast persónum sem maður hatar og elskar og elskar að hata. Gott sjitt fyrir lítinn pening.

4 Kómhendur:
Mikið er þetta geðsjúkt konsept: að vera með celebrity-crush á leiklistar*nemum*. Tveimur.
búinn að klippa þau út úr leikskránni og hengja þau öll upp á vegg ... stal sko 2000 eintökum og núna sést ekki í hvaða lit herbergið mitt var málað.
hehe...ég veit hver celebrityin eru...liggaliggalái....áts ég rak mig í...!!!!
Ég held ég viti hver önnur er, því mér finnst hún svo sæt. Þér hlýutur að finnast hún sæt líka.
Post a Comment
<< Home