Fyrsta fyrsta
Í dag var fyrsti skóladagurinn minn og í dag er fyrsta bloggfærsla þessa árs skrifuð á Tímamótabloggi Alb...ég meina Árna. Ég hef ekki mikinn tíma þar sem dagurinn er búinn eftir tólf mínútur en látum vaða.
Snorri fór til London, ég giftist Benna óopinberlega í huganum þegar hann kom með morgunmat í sófann þar sem ég svaf í íbúð systur hans sunnudagsmorguninn. (skilaboð til allra kvenna: Takið þennan mann frá mér áður en ég svík lit endanlega!)
Nóg um það, ég var í leikhúsi í gær á Túskildingsóperunni. Þetta var mögnuð sýning með miklu fleiri tilvísanir heldur en áhorfendasæti og eftir að hafa horft á helminginn af henni var greiningarhamsturinn minn sprunginn á hlaupahjólinu sínu og farið að lesa Hér og nú. Hann tók síðan aftur við sér í seinni hluta seinni hlutans og greindi endann með herkjum. Restin af mér fílaði leikritið annars bara vel.
Fyrir framan mig (á næst fremsta bekk) var stelpa, vinkona mín og fyrrverandi samstarfsmaður í menningarsmiðjunni Broadway. Hún hafði ALDREI farið í leikhús áður. Að fara á Brecht sýningu sem fyrstu leiksýninguna er fyrir mér eins og að byrja á kílógrammi af Voltaren Forte verkjalyfjum áður en þú ferð í hálfa aspirín. Hún sofnaði, hló að manninum sem lék konu og klappaði í lokin. "þetta var nú bara skemmtilegt." Samt verð ég að segja að uppspíttaði greiningarhamsturinn í hausnum á mér var pínu sammála henni. Ég hefði getað skrifað 20 blaðsíður um það en þetta var nú samt bara skemmtilegt.
Annars var ég að hugsa um að selja úr mér líffærin til að geta borgað þessi skólagjöld... einhver tilbúinn að kaupa?

11 Kómhendur:
.....Og lýsingarverðlaun nátthrafna og almennt svefnlausa fólkins fær Árni!!!!
Hló þangað til að ég fékk magahraðsperrur!
Gledilegt nytt ar!
Hmm.. ekki selja innyflin. Notaðu þau frekar í splatterinn. Það er svo flott ef að einhver er t.d. með alvöru mannagarnir og svoleiðis.
En þú getur selt blíðu þín í staðinn
Nú er ég að vinna í Þjóðleikhúsinu og það eru svona 4-5 á hverri sýningu sem hafa aldrei komið í Þjóðleikhúsið áður.
Mér finnst umgjörð sýningarinnar ljót. Gulltyppið fannst mér skemmtilegt.
Ég er viss um að þú segir það við alla strákana Magga mín. :)
(þó ég viti ekki afhverju þú ættir að segja þeim hversu margir hafi aldrei komið þjóðleikhúsið áður)
en yndælt, mig vantar einmitt nýtt bris. Hitt fórst í umhverfisslysi.
Ég bíð þúsara í nýra úr þér. Held ég væri samt meira til í blíðu þína.
Sammála Bróður Besta - Benni er kóngurinn. Mögulega Ferski Kóngurinn. Það er hreint ótrúlegt hvað kvenþjóðin er lagin við að láta menn á borð við Benna framhjá sér fara. Og heyriði það addna.
Mig vantar að losna við rafgeymi og poka af kanilgifflum. Skipta á sléttu?
úh, kanilgifflur! (eftir umhugsun) hentu inn eintaki af nýja disknum ykkar og ég skal íhuga málið.
ég skal að minnsta kosti bjóða þér upp á bjórinn sem þú gleymdir að borga um daginn...
Síðan mæli ég með því að breyta kommentakerfinu þannig að allir geti kommentað. Eins og það er núna getur bara fólk sem er með blogger.com síðu kommentað. Flokkast undir mjög grófan fasisma í mínum augum...
Post a Comment
<< Home