Herra Snjór 2006 og Ungfrú Perú
Já, mér finnst snjórinn í byrjun janúar 2006 vera fyrirmyndarfagur. Hann virðist stöðugt halda sér hvítum og vera mjúkur, samt ekki of fjúkandi. Annars vil ég bara óska Guðrúnu góðrar ferðar og í tilefni setja nýjan tengl á mitt ástkæra ylhýra blogg. Takk líka fyrir partýið Guðrún, það var gott í því.

6 Kómhendur:
Mér þykir rétt að hin fagra snót hljóti eitt af eftirfarandi auknefnum, búnum til úr orðunum Perú og Guðrún:
Gerú
Puðrún, eða
Perún
Já, ég er líka mjög ánægður með allt þetta snjófarg.
Reyndar dálítið spúkí að fylgjast með snjónum fjúka smám saman af þaki bílsins manns, er maður keyrir, í baksýnisspeglinum. Veit ekki af hverju, en það er spúkí.
~Vladi
Ég er ekki alveg eins ánægð með snjóinn, en það að ég festi litla bílinn minn þrisvar í dag gæti haft áhrif á þá skoðun mína...
Öðru er ég sammála:)
Perún er nú skást held ég en ég held að mærin verði að segja eitthvað í þessum efnum svo ég geti gleymt því og gert það sama eins og það sé mín eigin hugmynd. Mikið rosalega var þetta löng málsgrein. Vladi, ertu sá sem ég held að þú sért? Vertu hjartanlega velkominn hvenær sem er!
mig langar í snjó...
Jújú, Vladi = Valdimar BÁ!
Takk fyrir boðið, ég á líklega eftir að lesa þetta skemmtilega blogg reglulega;)
Post a Comment
<< Home