Saturday, January 28, 2006

I am Spartacus

Á tímum okkar er frelsi. Jean Paul-Sartre, eða Láki Stuð eins og ég vil kalla hann, talaði um að frelsi væri alltaf háð einhverju. Þú ert með frelsi frá kúgun, frelsi til að velja. Núna er bara frelsi. Láki Stuð skrifaði helstu verk sín á þeim tíma þegar hundruðir manna voru búnir að drepa hundruðir manna og enn fleiri höfðu dáið úr kulda, fátækt og almennu kreppustuði. Fólk þurfti að vita að allir hefðu val. Allir væru með frelsi til þess að gera það sem þeir þyrftu, annars væru þeir ekki mennskir.
Frá því að ég var unglingur hef ég mótmælt mjög mikið. Á tímabili gekk ég með alls kyns ögrandi barmmerki og gekk mismunandi leiðir niðrí bæ til að öskra mismunandi ögrandi setningar. Frjáls Palestína! Hærri laun fyrir konur! Niður með samræmd stúdentspróf! Borgið kennurum laun! Látið Írak í friði, ótuktirnar ykkar! Ekki gefast upp Falun Gong! Látið Kárahnjúka vera!
Ég sé alls ekki eftir því. Öll þessi mál hafa snert mig eða skipt mig máli. Síðan hefur þetta gefið mér góða götuþekkingu í 101 og ágætis þol við kulda. En hvaða rétt hef ég til að mótmæla? Hver leyfði mér að benda á fólk sem er ekki frjálst og vorkenna því?
Á tímum okkar er frelsi. Sem er frábært. Það er stuð að vera frjáls. Allir eru í fyrsta sæti. En með því að gera alla frjálsa gerirðu alla að skrímslum.
Fyrir alla muni ekki hætta að lesa núna, skýringin er á leiðinni. Í öllum ævintýrum, í öllum sögu, allstaðar nema í okkar nútíma er sá sem hefur valdið illur og sá sem hefur ekkert góður. Þetta er alhæfing en þetta er í það minnsta eitthvað sem allir kannast við. Hinn fátæki verður konungur og allt endar vel. Litlar sálir sameinast gegn stóru valdi. Þetta er falleg saga og mig hefur alltaf langað að vera í henni. Meira en mig grunaði.
Á tímum okkar er frelsi en við getum ekki séð frá hverju eða til hvers það er. Hinn vinnandi maður tekur lán og á flat-screen og bimma. Við kaupum notuð föt til að líta út eins og okkur sé sama, en samt erum við klædd eins og gínur í Spútnik sem eru verðlagðar á 30.000 kr! Við getum ekki skapað list nema að með gráðu í markaðsfræði og við getum ekki rekið banka án þess að vera með listfræðing á launum til að velja úr hvaða hungruðu listamenn verða þeim ekki til skammar. Hans-Klaufi á vísakort og Grimma stjúpmóðir Mjallhvítar styrkir Unicef og Árni situr á þægilegum stól í túristabúðinni sinni með 1100 kr. á tímann við að predika um vonleysi þess að predika.
Á okkar tímum er hræsni og við erum öll flækt í henni. Það er enginn hreinsunareldur eða grænmetisfæði sem mun bjarga því. Við getum öll sagt "I am Spartacus", en bara eitt okkar getur verið Kirk Douglas en hann er svo sannarlega í stuði.

9 Kómhendur:

Blogger Humar hripaði...

Hahahahahaha. 1100 kall á tímann, það er algerlega verið að taka þig í rassgatið. Þú ættir e.t.v. að mótmæla því.
Kveðja,
Heiðar.

11:05 AM  
Blogger Árni hripaði...

1100 kall á tímann fyrir að sætur við einmana túristastelpur og kurteis við ráðvillt túristapör eru fín laun skal ég segja þér. Ég væri nú ekki hissa hinsvegar ef það hefði fylgt vaselíndolla með þínum launaseðli í Byko og hugsanlega þess vegna sem þú vannst þar svo lengi ;)

Kveðja,
Íslenski þjóðbúðingurinn

1:19 PM  
Blogger Nói hripaði...

Ég skildi ekki allt sem þú sagðir í þessari færslu. Hugsanaflæðið alsráðandi... fékk minn heila allavega til þess að starfa af einhverju marki þennan letilega sunnudag.

3:27 PM  
Blogger Atli Sig hripaði...

Væri það ekki frekar "I am Sportacus" ?

4:25 PM  
Blogger Árni hripaði...

Nei, afþví að enginn þrælanna í bíómyndinni Spartacus var með furðulega mjótt yfirskegg og spandex galla sem tónaði við nátthúfuna sína. Það hefði verið áhugavert, en ekki beinlínis til þess að styrkja boðskap myndarinnar. Né tilvist þessarar spurningar sem þú lagðir fyrir gallaða kómhendukerfið mitt.

12:05 PM  
Blogger Atli Sig hripaði...

Þessi spurning var póstmódernísk vísun í bilaðan nútíma okkar. Eða bara lélegur brandari sem átti að benda hvað það er fáránlegt að kalla hann Sportacus því það er ekkert skylmingaþrælslegt við Íþróttaálfinn.

Snilld.

Gleymdu þessu!

11:11 AM  
Blogger Árni hripaði...

Hvernig samloku ætti ég að fá mér á meðan þú heldur áfram að grafa eigin gröf, Atli minn? Einhverjar uppástungur? Kannski með beikoni?
Annars finnst mér Sportacus fín þýðing þar sem hún vísar í menningararf Bandarríkjanna sem vissulega er ofurraunverulegur eins og Baudrillard myndi segja. Íþróttaálfurinn er nú enginn álfur samkvæmt bókstafstrúarmönnum heldur er það? Nei ég bara spyr.

1:01 PM  
Blogger Erlingur Grétar hripaði...

Hausinn á mér sprakk við að lesa þessi kómhenduskipti

3:53 AM  
Blogger Erlingur Grétar hripaði...

Stórkostleg grein engu að síður hjá þér Árni minn.

3:55 AM  

Post a Comment

<< Home