Hand on your heart
Mig langar að tilkynna að ég er á móti öllum sem segja að Sylvía Nótt sé fyrirmynd sköpuð úr klámvæðingu og kvenfyrirlitningu. Ég er feministi.
Nær engum er sama um hana. Sumum finnst hún æði, öðrum finnst hún til skammar sem forsvari íslensku þjóðarinnar í Eurovision. Seinni hópurinn ætti að mínu mati aðeins að íhuga stöðu Eurovision í heiminum. Wigwam og Ruslana tryggðu það endanlega að hvort sem þjóð ákveður að taka þátt með "þjóðsöng" eða "keppnislagi" er það alltaf úrkynjuð og ýkt stereótýpa sem fellur í suðupott evrópskrar ruslmenningar. Jamms, hálfberir karlmenn í loðskóm að berja 20x of stórar trommur skoppandi um sviðið er ruslmenning, Ruslana í pels með eldvörpu er líka ruslmenning (vísun í atriðið hennar í fyrra). Alveg á sama hátt er stolið lag og glys og samræmdar tvíbura dansstelpur með neon-fyllt brjóst ruslmenning. Auðvitað er hrokafullt að taka sér valdið til þess að kalla eitthvað meira rusl en annað, en svona í alvöru talað, þegar virðingin fyrir formúlunni er meiri en gleðin til að skapa getur fólk alveg eins verið heima að lita þrautabækur barnanna sinna.
Auðvitað eru margar góðar undantekningar, en gervimennskan er í forgrunni engu að síður. Sylvía Nótt er bókstaflegt gervimenni. En hún höfðar þó til fólks, sama þó þetta fólk séu hugsanlega bara Íslendingar.
Þegar maður kemur inn á skemmtistaði bæjarins og plötusnúðurinn hefur ekki átt gott lag í kortér er alltaf magnað að sjá hvernig allar áhyggjur hans hverfa þegar sefjaður múgurinn spangólar Sylvíu Nóttar lagið (bónus fyndið að sjá fólkið sem kann símtals-textann í laginu utanað).
Ég styð Sylvíu Nótt. En ég treysti henni ekki. Hún er eins og Lína Langsokkur eftir að hafa alist upp í röngum félagsskap.
Of margar stelpur sem ég hef hitt hafa borið fyrir sig að þær væru "algjör Sylvía Nótt" og komið síðan fram af dónaskap, sjálfselsku og grimmd í skjóli þess að þessi ruslmiðla gervipersóna geri það. Mér líkar ekki fólk sem notar hana sem afsökun fyrir eigin hroka, þau eru ekkert skárri en fólkið sem ræðst í nafni kvenréttinda á þá konu sem hefur, án þess að þurfa nokkurn tímann að bugta sig eða beygja, náð eins langt og raun ber vitni.

18 Kómhendur:
Er íslenskt samfélag farið að snúast um Silvíu Nótt? ..."algjör Silvía Nótt"... Hvað þýðir það?
Vigdís Finnboga, Bubbi, Bó, Erpur and Björk of course... það er alltaf einnhver sem kemst inn í miðjuna og hinir dansa í kring. 'Algjör Sylvía Nótt' er manneskja sem setur sig alltaf í efsta þrep valdastiga og helst á upplognum forsendum. Dæmi: Páll Magnússon afhendir verðlaun, verandi efsti í valdastiga Sjónvarpsins, og hún snýr stöðunni við með því að segja: 'Það er ógeðslega vandræðalegt að fá svona verðlaun frá fyrrverandi kærastanum sínum, skilurrö (smjatt)'
Eldra dæmi: Tötralegur maður skellir rjómatertu framan í séntilmann með harðkúluhatt.
:D Mér finnst maðurinn með harðkúluhattinn taka sig einum of alvarlega hvort eð er.
Meiri fíflalætin..
Ef manneskja líkir eftir kvaki andar, heyrist þá bergmál?
Eða ef kvak andar er spilað af miklum styrk af segulbandi, þá??
Þú ert bloggdólgur, Vilborg.
Eina vandamálið með Sylvíu Nótt - sem frá mínum bæjardyrum séð er *skopstæling* á gildum líðandi stundar (sjálfselskan, efnisdýrkunin og svo framvegis) - er fólkið sem fattar ekki að þetta er ádeila. Fólkið sem væri til í að þekkja Sylvíu Nótt og, þú'st, partía meðenni eða eitthvað. Þú'st, ekki í *alvörunni* sko, en... Þú veist.
Bara svona uppá menntarúnkið - nefndu mér 3 hliðstæður við Sylvíu Nótt úr bókmennta/leiklistarsögunni :D
Jahá... En ef stúlkur eru farnar að segja: "Ég er algjör Silvía Nótt." eru þær þá að meina að þær séu þessi tötralegi maður sem skellir rjómatertunni framan í sjéntilmanninn? Eða eru þetta týpurnar sem Snorri talaði um? Þessar: OMG! Þú'st ert'ekk'að grínas'! Silvía Nótt mar. OMG!
Fólkið sem er of vitlaust til að fatta ádeiluna?
er það sylvía eða silvía? það er það sem ég hef mestar áhygggjur af!
neonfyllt brjóst, það er algjörlega málið
það er rétt Katrín... ég mun teljast buxnakúkur fyrst ég skrifaði heila færslu með vitlausri Nótt.
það tók mig ágætis tíma að fá ekki ælupest að sjá skvísuna, en að senda hana í Eurovision er líklega besta hugmynd Íslands varðandi Eurovision til þessa. Minnsta kosti getum við 300.000 hlegið :D
Ein lítil/Stór Íslendingur í útlöndum
Þetta er svo þétt færsla hjá þér Árni. Þú ert gáfaður og kannt að láta aðra njóta þess. Vildi bara láta þig vita af því
tíhí, *roðn*, þú ert líka ógeðslega gáfaður Elli, og ýkt sætur líka! eða þú veist. Kúl.
Bloggaðu!
"Sláturfélagið Gröndal, Sláturfélagið Gröndal og Splattervinafélagið. Þið eruð vinsamlegast beðin um að koma upp að upplýsingaborði"
Blogg blogg
Post a Comment
<< Home