Fyrirbærafræðilega bloggið hans Árna
Sæl, langt síðan ég sá ykkur síðast. Semsagt upplifði ykkur í raunheimi sem fyrirbæri en ekki sem hluta af fyrirfram niðurnegldu táknkerfi mínu, fast í huganum. Ég hef ekki skrifað inn á þetta blogg, það er að segja upplifað þörf til að festa niður í orð, með puttunum á lyklaborð, inn í táknkerfi sem aðrir geta séð og metið frá sínu sjónarhorni sem aðrir.
Þegar þið lesið þetta verður upplifun mín á þeim orðum sem ég setti saman með stöfum á lyklaborði á tölvu í skrifstofu pabba míns orðin einhver önnur og þið munið upplifa það sem eitthvað annað og þegar þið lesið þessa setningu aftur verður hún orðin önnur. Núna er hún orðin önnur. Og núna. o.s.frv.
Ég held að þið skiljið hvað ég á við en samt er það náttúrulega ykkar skilningur sem ég reikna þá með að sé svipaður en samt ekki sá sami og ég er að hugsa nema að því leyti að þið eruð innan sama táknkerfis og ég en bara með mismunandi fyrirbæri í kringum ykkur og að upplifa mig, bloggið og ykkur sem önnur en ég upplifi ykkur. Eins og þið vitið náttúrulega öll þá lesið þið þessa stafi sem er verið að skrifa núna með puttunum mínum og verðið að stöfunum og þar afleiðandi sjáið allt sem stafirnir sjá, puttana, aðra stafi.... annað...
Jæja, núna er ég kominn með hausverk, í hausnum, með verk og þið getið upplifað það sjálf ef þið ákveðið að það sé ykkar upplifun sem viðbragð sem ákvörðun í því fyrirbæri sem er ykkar upplifun. Ég held að það sé þá komið skýrt fram. Verið sæl.

5 Kómhendur:
nettop
Hefnd mín mun verða ógnvænleg. Þú mátt búast við allavega 3 árásum frá Sigga í Boltanum - when you *LEAST* expect it!
Svona þegar mestu krömpunum fer að linna ... ætti fyrirbærafræði ekki að þýðast sem Freakology?
ég las fyrstu setninguna og tók meðvitaða ákvörðun um að lesa ekki meira.
Haha, ég sé alveg fyrir mér ættarmótið þar sem Siggi í boltanum og Snæbrá með mastersgráðuna í fyrirbærafræði spila félagsvist saman.
Ég fékk líka hausverk.
Post a Comment
<< Home