Saturday, May 27, 2006

neun und neunzig luftballoons...

Einhvernveginn hef ég ekki enn tengt saman gengdarlausa lífshamingju og blogg. Eða sumar og blogg. Samt ætla ég að leyfa mér að blogga pínulítið, fyrst ég er kominn á bakvið gamla góða afgreiðsluborðið í túristabúðinni minni.
Margt hefur á daga mína drifið síðustu tvo mánuði, t.a.m. fékk ég staðfestingu frá Mariusz Golaj, pólverja sem vinnur á skrifstofu í 300 ára gömlu húsi um að ég mætti kíkja á leikhópinn hans í tíu daga námskeiði.
Ég er kominn með vinnu hjá hinu húsinu við að leikstýra fyrsta grínverkinu mínu. Að sjálfsögðu réði ég bara nánustu vini mína til að vera í því og bara ein í leikhópnum mun ekki flytja heim til mín eftir mánuð. Í gærmorgun var ég á mjög undarlegum fundi þar sem ráðgjafi var ráðinn af Útvarpsleikhússtjóra til að hjálpa mér að þróa splatterfarsann Byltingarhetjuna - sem ég var búinn að svo gott sem afskrifa -, ef það gengur í gegn þarf ég ekki að vinna neitt fyrir skólagjöldunum mínum næsta ár, bara skrifa. Síðan erum við Snorri að vinna saman að handriti, eins og við hefðum aldrei gert annað.
Ég nenni ekki að skrifa meira um mig, mér líður of vel til þess. Mig langar að nota tækifærið til að þakka öllum sem ég þekki fyrir hvað síðustu dagar hafa verið frábærir. Sumarið er ekki bara veðurfar, það er líka persónuleiki. Og ég er að fíla þennan gaur.
Til hamingju með útskriftirnar Benni og Sigga og Halli!

3 Kómhendur:

Blogger Vilborg hripaði...

Hei til hamingju með allt og allt og allt sem er að gerast hjá þér. Hlakka til að klóra mig fram út leiðbeiningum til að finna Okidoki í Varsjá með þér. Það verður stuuuuuuð:)

4:32 PM  
Blogger Árni hripaði...

Brot úr áðurnefndum leiðbeiningum sem eru ein of hálf bls.: go to intersection with Swietokrzyska (with McDonalds) Continue up Marszalkowska and take the first street on the right (Rysia) and We are the first building on a square to the right, with a bank on a ground floor. Please note! The address is Plac Dabrowskego (what means Dabrowskiego Square 3) and it is in the very, very city centre. Never (aldrei nokkurn tímann) go to ulica ul. Dabrowskego (street) in the Mokotow district, which is far away.

12:29 PM  
Blogger Snorri Hergill hripaði...

Þetta minnir mig á ágæta sögu af þeim merka norska skákmanni Dag Ulvestad. Hann var að fara á alþjóðlegt skákmót í Póllandi, og var búinn að skrölta eitthvert *lengst* útí rassgat í eitthvert félagsheimili sem var hvergi, kom inn og sá að þar var verið að setja upp fyrir mótið. Mótsstjórinn, sem var lítill, þybbinn og portlegur maður með yfirskegg, sá hann standa í anddyrinu og ljómaði allur upp; hann skálmaði á stuttum löppum að Ulvestad og sagði af mikilli sannfæringu:
"Hello, my waiting dog!"

Það er enn óljóst hvað nákvæmlega á að gera í þessari félagslegu aðstöðu.

3:26 PM  

Post a Comment

<< Home