Thursday, June 22, 2006

Undarleg tilfinning

Framhaldsbíómyndir um ofurhetjur byrja oft á ákveðinni krísu. Lífið er komið í sinn vanagang, allt ætti að vera eðlilegt. Samt hefur eitthvað breyst. Ísland eftir Póllandsævintýrið er þannig fyrir mér. Það var undarlegt að upplifa alvöru rósemd. Að vakna við hanagal og sofna við geltandi hunda. Pólsk sveit með þremur kristskrossum og mynd af páfanum í herberginu mínu.
Þetta voru bara tíu dagar en þetta var líka heilt sumar. Ég held að ég ætti ekki erfitt með að búa á mannfáu og afskekktu svæði. Allavega ekki ef félagsskapurinn er tiltölulega heilbrigður á geði og heiðarlegur hvor við annan. Venjulega var hugarfar mitt alltaf að maður myndi alltaf missa úr við að láta sig hverfa. En þetta eru allt sömu hjólin, þau snúast bara mishratt.
Mín var saknað og við mér tók hlýja og blíða þegar ég kom til Íslands aftur. Mér þótti vænt um það. Mér þótti vænt um að sveiflast aftur inn í þessa ótrúlegu sumarrútínu mína..

Samt hefur eitthvað breyst. (dramatísk tónlist!)

8 Kómhendur:

Blogger Snorri Hergill hripaði...

Kannski hefur *þú* breyst..? :D Heimurinn hefur reyndar þann leiða sið að breytast hingað og þangað ef maður svo mikið sem lítur af honum.

5:14 PM  
Blogger Dóra Björt hripaði...

Mér líður einmitt svona, núna, eftir sumar ástarinnar.

10:27 AM  
Blogger Nói hripaði...

Muuu!

5:36 AM  
Blogger Dóra Björt hripaði...

Bloggaðu Árni.

6:30 AM  
Blogger Jon hripaði...

Sniðugt. Las þessa færslu þegar hún var rituð og pældi ekkert rosalega mikið í henni.

Les hana hinsvegar aftur núna, eftir "heimkomu" og tilfinningar eru svipaðar hér á bæ.

3:26 AM  
Blogger Nói hripaði...

magnað

9:12 AM  
Blogger Inga Ausa hripaði...

Ehhh... aetladi ad senda ther email en binghamaddressan virkadi ekki.

Til hamingju med afmaelid litli skrattakollur...

med drykkjukvedjum fra Vienna.

4:54 AM  
Blogger Jakob Tómas Bullerjahn hripaði...

Jæja, það er alla vega gott að Reykjavík geti sofið rótt, eftir að riddari næturinnar er kominn aftur til heimaborgar sinnar!

2:25 PM  

Post a Comment

<< Home